Category Archives: Viðburðir

Hlutdrægni fjölmiðla gagnvart BNA mánudag 15. október: 12–13

Næsti viðburður á vegum RNH er erindi, sem norski blaðamaðurinn Jan Arild Snoen flytur mánudaginn 15. október um hlutdrægni evrópskra fjölmiðla gagnvart Bandaríkjum Norður-Ameríku kl. 12–13 í stofu 201 í Odda, félagsvísindahúsi Háskóla Íslands. Snoen telur, að evrópskir fjölmiðlar dragi … Continue reading

Comments Off

Fátækt á Íslandi þriðjudag 9. október: 12–13

Þriðjudaginn 9. október 2012 verður þriðji hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins þennan vetur. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, flytur erindið „Fátækt á Íslandi 1991-2004“. Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst stundvíslega kl. 12:05. Því var oft … Continue reading

Comments Off

Ráðstefna um fiskveiðar, laugardaginn 6. október: 13–17.35

Næsti viðburður á vegum RNH verður alþjóðleg ráðstefna um „Fiskveiðar: sjálfbærar og arðbærar“ laugardaginn 6. október 2012 í Háskóla Íslands. Aðalfyrirlesarar verða yfirmenn og sérfræðingar fiskveiðideilda FAO, OECD og Alþjóðabankans og þrír helstu sérfræðingar Íslendinga í fiskveiðum: Árni Mathiesen, FAO, … Continue reading

Comments Off

Funder um örlög við alræði, mánudag 24. september: 12–13

Ástralski rithöfundurinn Anna Funder heldur fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um nýútkomna skáldsögu sína All That I Am mánudaginn 24. september kl. 12 í stofu 201 í Odda í Háskóla Íslands. Martin Regal, dósent í ensku við Háskóla Íslands, … Continue reading

Comments Off

Courtois um kommúnisma, laugardag 22. september: 13–18

RNH heldur alþjóðlega ráðstefnu í Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, Öskju, stofu 132, kl. 13–18, laugardaginn 22. september. Ber hún yfirskriftina „Evrópa fórnarlambanna: Kommúnisminn í sögulegu ljósi“. Aðalræðumaður verður franski sagnfræðiprófessorinn Stéphane Courtois, ritstjóri Svartbókar kommúnismans, sem kom út hjá Háskólaútgáfunni 2009. … Continue reading

Comments Off

Walker um atvinnufrelsi á Íslandi, mánudag 17. september: 8.30–10.30

Mánudaginn 17. september næstkomandi, kl. 8.30, mun kanadíski hagfræðingurinn dr. Michael Walker, fyrrverandi forstöðumaður Fraser stofnunarinnar í Kanada, halda fyrirlestur á morgunfundi RSE á Grand Hótel í Reykjavík um þróun atvinnufrelsis á Íslandi. Tilefni fundarins er útgáfa samanburðarskýrslu um atvinnufrelsi … Continue reading

Comments Off