Author Archives: HHG

Bretar skildu Íslendinga eftir úti í kuldanum

Bankahrunið íslenska 2008 var Íslendingum að kenna í þeim skilningi, að hér hafði skapast mjög viðkvæmt ástand vegna örrar útþenslu bankanna. En gler brotnar ekki, af því að það sé brothætt, og viðkvæmt ástand breytist ekki í hrun, nema eitthvað … Continue reading

Comments Off

Smith: Peningar bæta lífið og lengja

Prófessor Tara Smith frá Háskólanum í Texas í Austin flutti erindi um siðferðisboðskap rússnesk-bandarísku skáldkonunnar og heimspekingsins Ayns Rands á vegum RNH mánudaginn 24. nóvember. Rand var áhrifamesti kvenheimspekingur, sem uppi hefur verið, og hafa verk hennar selst í þrjátíu … Continue reading

Comments Off

Bretar og bankahrunið: Lundúnum 27. nóvember kl. 18.30

Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði og forstöðumaður rannsókna í RNH, flytur fyrirlestur í hugveitunni Institute of Economic Affairs í 2 Lord North Street (Westminster, nálægt breska þinghúsinu) í Lundúnum fimmtudaginn 27. nóvember kl. 18.30. Heiti fyrirlestursins er „Why … Continue reading

Comments Off

Smith um Rand: Mánudag 24. nóvember kl. 17–18

Sjálfsbjargarhvötin er góð, kapítalisminn siðlegur, sagði Ayn Rand, vinsælasti og áhrifamesti kvenheimspekingur allra tíma, en skáldsögur hennar, sem hún notar til að koma á framfæri boðskap sínum, hafa selst í þrjátíu milljónum eintaka. Mánudaginn 24. nóvember kl. 17 mun heimspekiprófessorinn … Continue reading

Comments Off

Fjölmenn ráðstefna frjálshyggjustúdenta í Reykjavík

Um 85 manns sóttu stúdentaráðstefnu ESFL, European Students for Liberty, í Reykjavík laugardaginn 15. nóvember, þar af um 15 erlendir stúdentar. Fór ráðstefnan fram á Háskólatorgi í Háskóla Íslands. Lukas Schweiger, formaður framkvæmdastjórnar ESFL, sagði frá myndun ESFL og tilgangi. … Continue reading

Comments Off

European Students for Liberty: Reykjavík 15. nóvember

Evrópusamtök frjálslyndra háskólanema, European Students for Liberty, halda svæðisráðstefnu í Reykjavík laugardaginn 15. nóvember. Hún er haldin á Háskólatorgi í Háskóla Íslands, í stofu HT-105. Dagskráin er á þessa leið: 11.30 Opnun 11.45 Dr. Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent talar um … Continue reading

Comments Off